Ţó líđi ár og öld!!
skemmtilegheitum. Ég kom úr eyjunni seint á föstudag og fór af stað snemma
á laugardagsmorgni í næsta ferðalag. Framundan var enn ein
verslunarmannahelgin á Flúðum. Það var þægilega mikið af fólki á svæðinu
þetta árið, aldrei biðröð á klósettið nema þegar við stóðum í spreng fyrir
utan klósett sem engin var á....hahaha, spurning hversu margir öl voru
farnir niður þá. Tjaldsvæðið á Flúðum þoldi illa vatnið sem kom úr
himninum og fyrr en varði óð maður skítinn upp að hnjám. Bjórinn rann jafn
ljúflega niður og rigningin á tjaldinu. Við vorum fimm saman, drukkum
fullan poka af tómum dósum, þegar leið á kvöldið og vitleysis talið hafði
náð hæðstu hæðum héldum við yfir götuna og inn á Útlagann. Miðað við
fjöldann á tjaldsvæðinu áttum við ekki von á mörgum reikandi sálum á
pöbbinum, en annað kom á daginn því olnbogarými var mjög lítið. Rúnar Júl
og synir trylltu lýðinn með gömlum slögurum. Eitthvað er karlinn farinn að
týna röddinni en á kvöldum sem þessum þegar hitinn og svitinn er
óbærilegur hefði meira að segja Megas verið skemmtilegur. Rabbabararúna,
er ég kem heim í Búðardal og svo framvegis. Þó sá gamli sé farin að lýjast
munu lögin lifa áfram. Nú eftir frábært kvöld á Útlaganum var farið beint
í bólið enda ástandið misjafnt á mannskapnum. Þegar leið að morgni vissi
maður varla hvernig maður átti að haga sér, kannski pínulítið þunnur,
kannski lekur eftir næturævintýrin, kannski bara var þetta bara allt
hálföfugt eftir allt saman.
Á sunnudagseftirmiðdegi var því ákveðið að pakka saman og fara heim því
engin virtist vera tilbúin í neinar stórræður. Engin frammistaða á
bráðungu fólki.
Nokkrir nauðsynlegir hlutir sem hafa þarf í huga eftir helgina.
- ekki skal fara í drullubaðið á Flúðum nema að vera í skófatnaði bóndans.
- muna skal að taka með leiðbeiningar fyrir kuldagalla.
- muna skal að hætta að skála þegar klukkan gengur fram yfir eitt.
- muna skal að setja kubba undir tjaldvagninn og gæta þess að höfuðið
liggi ekki niður í hallann.
- óþarfi er að taka með sér nesti því stutt er í búðina.
Framhald fljótlega.